
Hreppslaug verður opnuð í dag
Í dag hefst sumaropnun Hreppslaugar í Skorradal sem á síðasta ári var enduropnuð eftir gagngerar endurbætur með nýju laugarhúsi. Að sögn Kristjáns Guðmundssonar formanns Umf. Íslendings verður opnunartíminn í sumar frá klukkan 18 til 22 þriðjudaga til föstudaga, en klukkan 13 til 22 um helgar. Lokað verður á mánudögum. Í júlímánuði verður svo opnað klukkan 15 á virkum dögum.