Alfons Finnsson sjómaður um borð í Svövu SH-267 á fyrsta degi strandveiða í byrjun mánaðarins. Ljósm. Pétur Reynir Guðjónsson.

Þurfti að standa á bala til að ná upp á beitningarborðið

Alfons Finnsson kveðst vera færeysk ættaður Ólsari. Þar hefur hann búið alla tíð að undanskyldum fimm árum þegar hann bjó í Danmörku fyrir og um aldamótin. Alla tíð hefur hann verið viðloðandi sjó, byrjaði tíu ára að beita í landi en var fjórtán eða fimmtán ára þegar hann var fyrst munstraður um borð í bát. Áhuga fyrir ljósmyndun fékk hann í æsku. Foreldrar hans bæði voru dugleg að munda myndavélarnar og ungur fékk hann myndabakteríuna. Alfons hefur verið fréttaritari Morgunblaðsins og Skessuhorns í áratugi og á hundruði þúsunda ljósmynda sem geyma mannlíf og atvinnulíf í sjávarplássinu. Til hans er iðulega leitað ef mynda þarf atvik líðandi stundar. Alfons segir vanta mikið upp á að samfélagið viðurkenni nauðsyn þess að ljósmyndum áhugafólks sé komið til skráningar, geymslu og birtingar fyrir almenning. Ef ekki er gætt að því er hætt við að þessar heimildir glatist. Blaðamaður Skessuhorns tók Fonsa tali, en hann rær nú á uppgerðum báti sínum Svövu SH til strandveiða.