Fréttir

true

Keyptu bátinn Skuld og framleiddu samnefnda heimildarmynd um strandveiðar

Parið Rut Sigurðardóttir og Kristján Torfi Einarsson fengu þá hugmynd fyrir þremur árum að kaupa bát og byrja að stunda strandveiðar. Kristján Torfi hefur áður starfað sem sjómaður en hann er uppalinn á Flateyri. Rut er alin upp á Eyrarbakka og hafði aldrei komið á sjó áður en þau festu kaup á sínum fyrsta bát…Lesa meira

true

Framkvæmdir á Garðagrund í gangi

Verið er að vinna við endurbætur við götuna Garðagrund á Akranesi. Meðal annars er verið að breyta stíg við Krambúðina og einnig eru framkvæmdir við gerð tveggja strætóvasa. Fram undan er endurgerð á götunni, þar sem loka þarf fyrir umferð um götuna tímabundið.Lesa meira

true

Grundaskóli í fyrsta sæti í Hjólað í vinnuna

Átakið Hjólað í vinnuna 2023 fór fram dagana 3. – 23. maí síðastliðinn en það er landskeppni fyrirtækja og stofnana í átakinu. Voru verðlaun veitt fyrir þrjá efstu vinnustaðina í öllum flokkum sem hlutfall þátttökudaga miðað við fjölda starfsmanna. Starfsfólk Grundaskóla á Akranesi hefur til fjölda ára tekið þátt í keppninni og sýnt í verki…Lesa meira

true

Er á strandveiðum á trillu ömmu sinnar

Viktor Brimir Ásmundsson býr á Helgafelli 2 í Helgafellssveit þar sem er sauðfjárbú. Viktor er 22 ára og hefur stundað sjómennsku í um sjö ár og er nú í námi við Skipstjórnarskólann. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til Viktors að Helgafelli og spjallaði um sjómannslífið. Allir á sjó Hvenær byrjaðiru að vinna á sjó og…Lesa meira

true

Leikið sér á Langasandi – myndasyrpa

Í morgun fóru nemendur og kennarar í 1. til 6. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi á Langasandinn og voru skóflur, fötur og góða skapið með í för. Þau gerðu sér glaðan dag í góða veðrinu, bjuggu til alls konar listaverk í sandinum, trítluðu út í sjó, kíktu upp í kletta og snæddu nestið sitt. Blaðamaður…Lesa meira

true

Úrkomumet var kyrfilega slegið á Brekku í maí

Á Brekku í Norðurárdal féll meiri úrkoma í nýliðnum maímánuði en allar götur aftur til þess tíma sem mælingar hófust, árið 1969. Þórhildur Þorsteinsdóttir bóndi greinir frá því á FB síðu sinni að 198,9 mm úrkoma hafi mælst í mánuðinum, ýmist sem rigning, slydda eða snjór. Þetta jafngildir því að rétt um tveggja metra úrkoma…Lesa meira

true

Fjör á slökkvistöðinni í morgun – MYNDSKEIÐ

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar tók í morgun á móti öllum útskriftarárgöngum úr leikskólum á starfssvæðinu, Akranesi og Hvalfjarðarsveit, á slökkvistöðinni að Kalmannsvöllum 2 á Akranesi. Um er að ræða leikskólana Akrasel, Garðasel, Teigasel og Vallarsel á Akranesi og Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit. Tilefnið er lok á verkefninu „Aðstoðarmaður slökkviliðsins“ sem börnin hafa unnið að í leikskólanum…Lesa meira

true

Vandamál fylgja notkun E10 bensíns á eldri tæki

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum í vor ákváðu íslensku olíufélögin öll að hætta sölu á 95 oktana bensíni, en setja þess í stað í tankana svokallað E10 bensín. „Enginn aðdragandi var að þessum breytingum á vöruvali og engin kynning fór fram til að upplýsa neytendur,“ segir í frétt á síðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda,…Lesa meira

true

Er 84 ára og á fullu í ræktinni

Magnús Ólafsson er fæddur 14. mars 1939 og ólst upp á Efra Skarði í Svínadal sem tilheyrir í dag Hvalfjarðarsveit. Þar bjó hann til ársins 2006 og flutti þá í Melahverfi en kom á Akranes árið 2019 þar sem hann hefur búið síðan. Magnús stundaði búskap á sínum yngri árum á Efra Skarði með konu…Lesa meira

true

Ekki á neinni ákveðinni hillu

Markús Ingi Karlsson er sjómaður með mörg áhugamál og með skapandi hugsun. Hann settist niður í spjall með blaðamanni Skessuhorns í Borgarnesi fyrir stuttu þar sem farið var yfir málin. Markús býr í grennd við Grundarfjörð, en starfar sem vélstjóri á línubátnum Tryggva Eðvarðs SH-2 sem rær frá Ólafsvík. Þar er fjögurra manna áhöfn; skipstjóri,…Lesa meira