
Vandamál fylgja notkun E10 bensíns á eldri tæki
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum í vor ákváðu íslensku olíufélögin öll að hætta sölu á 95 oktana bensíni, en setja þess í stað í tankana svokallað E10 bensín. „Enginn aðdragandi var að þessum breytingum á vöruvali og engin kynning fór fram til að upplýsa neytendur,“ segir í frétt á síðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB. „Fjölmargir bifreiðaeigendur hafa haft samband við skrifstofu FÍB sem segja að þessi breyting hafi komið flatt upp á þá. Getur verið að yfirvöld neytendamála á Íslandi hafi enga aðkomu að þessum breytingum á innihaldi 95 oktan bensíns sem allir landsmenn verða núna að kaupa? Svona vinnubrögð vekja furðu á upplýsingaöld,“ segir í harðorðri yfirlýsingu FÍB.