Leikið sér á Langasandi – myndasyrpa

Í morgun fóru nemendur og kennarar í 1. til 6. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi á Langasandinn og voru skóflur, fötur og góða skapið með í för. Þau gerðu sér glaðan dag í góða veðrinu, bjuggu til alls konar listaverk í sandinum, trítluðu út í sjó, kíktu upp í kletta og snæddu nestið sitt. Blaðamaður Skessuhorns átti leið hjá og smellti nokkrum myndum af hressum og kátum krökkum á sandinum.

Leikið sér á Langasandi - myndasyrpa - Skessuhorn