Allir fengu að sprauta úr brunaslöngu. Ljósm. gbþ.

Fjör á slökkvistöðinni í morgun – MYNDSKEIÐ

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar tók í morgun á móti öllum útskriftarárgöngum úr leikskólum á starfssvæðinu, Akranesi og Hvalfjarðarsveit, á slökkvistöðinni að Kalmannsvöllum 2 á Akranesi. Um er að ræða leikskólana Akrasel, Garðasel, Teigasel og Vallarsel á Akranesi og Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit. Tilefnið er lok á verkefninu „Aðstoðarmaður slökkviliðsins“ sem börnin hafa unnið að í leikskólanum í vetur. Þar hafa krakkarnir athugað eldvarnir á sínu heimili og á leikskólanum. Logi og Glóð eru slökkviálfar og eru krökkunum til aðstoðar í þessu verkefni en þeir fá einnig leiðsögn frá leikskólakennurum og forvarnasviði Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Verkefnið er samstarfsverkefni leikskóla, Brunabótafélags Íslands og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Fjör á slökkvistöðinni í morgun - MYNDSKEIÐ - Skessuhorn