Uppáhalds æfing Magnúsar er réttstöðulyfta.

Er 84 ára og á fullu í ræktinni

Magnús Ólafsson er fæddur 14. mars 1939 og ólst upp á Efra Skarði í Svínadal sem tilheyrir í dag Hvalfjarðarsveit. Þar bjó hann til ársins 2006 og flutti þá í Melahverfi en kom á Akranes árið 2019 þar sem hann hefur búið síðan. Magnús stundaði búskap á sínum yngri árum á Efra Skarði með konu sinni Grétu Þorbergsdóttur en svo smám saman fjaraði undan því, þau hættu búskap og fóru bæði að vinna úti árið 1989. Magnús var síðan að vinna til ársins 2009 þegar hann varð sjötugur og settist þá í helgan stein. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn á heimili þeirra hjóna á dögunum til að ræða við Magnús um aðal áhugamál hans sem er líkamsrækt en hann varð 84 ára gamall nýverið.

Er 84 ára og á fullu í ræktinni - Skessuhorn