
Keyptu bátinn Skuld og framleiddu samnefnda heimildarmynd um strandveiðar
Parið Rut Sigurðardóttir og Kristján Torfi Einarsson fengu þá hugmynd fyrir þremur árum að kaupa bát og byrja að stunda strandveiðar. Kristján Torfi hefur áður starfað sem sjómaður en hann er uppalinn á Flateyri. Rut er alin upp á Eyrarbakka og hafði aldrei komið á sjó áður en þau festu kaup á sínum fyrsta bát saman. Í dag gera þau út bátana Skuld og Von frá Rifi en Rut er einnig ljósmyndari og kvikmyndagerðarkona. Um síðustu helgi var heimildarmyndin SKULD frumsýnd á kvikmyndahátíð á Patreksfirði en í myndinni eru Kristján Torfi, Rut og báturinn Skuld í aðalhlutverki. Rut og Kristján hafa unnið að kvikmyndinni undanfarin tvö ár og mun myndin verða sýnd á RÚV næsta vetur. Kristján Torfi hefur verið með annan fótinn í fjölmiðlageiranum síðustu ár, ásamt því að hafa tekið upp á því að semja tónlist á gítar og syngja. Tónlist Kristjáns heyrist í myndinni og stofnaði Rut Trillukarlakór til að syngja með í einu lagi myndarinnar. Trillukarlakórinn samanstendur af núverandi og fyrrum trillukörlum og mun koma fram á Sjómannadagsballinu í Ólafsvík. Blaðamaður Skessuhorns hitti parið yfir kaffibolla í Ólafsvík en þau búa í Hafnarfirði og halda til í hjólhýsi á Hellissandi á meðan þau stunda strandveiðarnar.