
Matarbúr Kaju lokar brátt á Akranesi
Karen Emilía Jónsdóttir, Kaja, hefur ákveðið að loka versluninni Matarbúr Kaju, á Stillholti 23 á Akranesi, þann 1. september. Segir hún ákvörðunina ráðast af því að ekki sé nægileg eftirspurn eftir slíkri þjónustu á Akranesi en verslunin einblínir á sölu lífrænnar matvöru. Kaja sjálf ætlar að snúa sér meira að framleiðslunni sjálfri og heildsölunni en vörur hennar eru seldar í fjölda verslana um land allt. „Búðin rekur sig ekki með starfsfólki en kaffihúsið hefur gengið vel og ég er núna að leita af einhverjum sem vill taka við þeim rekstri. Ég ætla aftur á móti að einbeita mér af því sem skiptir máli fyrir mig, sem er framleiðslan á mínum vörum,“ segir Kaja. Aðspurð um hvort þreifingar séu á málum fyrirhugaðrar jurtamjólkurverksmiðju segir Kaja að viðræður séu í gangi við fjárfesta en ekkert sé þó fast í hendi.