Trommusveit skólans hefur verið áberandi í bæjarlífinu. Ljósm. Toska.

Kraftmikið starf í Tónlistarskóla Akraness

Skólaslit Tónlistarskólans á Akranesi fóru fram við hátíðlega athöfn 23. maí síðstliðinn.  Þar tóku tólf nemendur við stigsprófsskírteinum og sextán nemendur við áfangaprófsskírteinum.  Auk þess fengu nemendur í einleiksflokki og trommusveit sem tóku þátt í Nótunni viðurkenningarskjal fyrir frábæra frammistöðu.

„Skólastarfið í vetur hefur verið kraftmikið enda er úrvalslið kennara við skólann og nemendur okkar eru sömuleiðis að standa sig vel,“ segir Jónína Erna Arnardóttir skólastjóri. „Til dæmis hefur trommusveitin okkar verið áberandi í bæjarlífinu og sömuleiðis er ánægjulegt að sjá skólahljómsveitina okkar blómstra. Skólahljómsveitin hélt einmitt skólatónleika fyrir 2.-3. bekk grunnskólanna á dögunum sem vöktu mikla lukku. Um 350 nemendur á öllum aldri hafa verið við nám í skólanum í vetur og er kennt á flest hljóðfæri auk söngs. Núna er verið að taka inn nemendur af biðlista fyrir næsta vetur. Reyndar er orðið nær fullt í flest nám, þó er eitthvað laust í forskóla, strengjadeild og blásaradeild, en hægt er að sækja um í gegnum heimasíðuna toska.is,“ segir Jónína Erna.

Kraftmikið starf í Tónlistarskóla Akraness - Skessuhorn