
,,Þrátt fyrir öll þessi slys hefur enginn í fjölskyldunni talað mig frá því að fara út á sjó“
Tryggvi Hafsteinsson er fæddur og uppalinn í Grundarfirði og hefur búið þar nánast alla sína tíð. Í dag býr hann með eiginkonu sinni, Unni Þóru Sigurðardóttur, og börnum þeirra tveimur, Klöru Dögg 11 ára og Aroni Leví 9 ára. Tryggvi er kominn af sjómönnum í báðar ættir en á barnsárunum ætlaði hann sér að verða fótboltamaður og spilaði lengi með Víkingi Ólafsvík en einnig með 2. flokki ÍA á Akranesi um tíma. Um tvítugt prófaði hann svo sjómennsku í fyrsta skipti og hefur ekki snúið aftur síðan. Hann segir sig hafa verið afar heppinn í sjóara rómantíkinni í Snæfellsbæ þar sem hann hefur unnið með frábærum sjómönnum í litlum fjölskyldufyrirtækjum. Þannig hittir á að þessu sinni að Tryggvi á afmæli á sjómannadaginn sjálfan og verður þá 38 ára. Blaðamaður Skessuhorns leit í kaffi til Tryggva og fékk að heyra sjómannasögur, m.a. þegar hann lenti í því óhappi að falla fyrir borð á Guðmundi Jenssyni SH.