Fréttir

true

Bláfáninn dreginn að húni á Langasandi – MYNDSKEIÐ

Leikskólabörn á Akranesi létu sig ekki vanta á Bláfánaafhendingu á Langasandi í morgun. Komu þau gangandi frá Teigaseli og Garðaseli í úrhellisrigningu og roki, aðstoðuðu við að draga fánann að húni og tóku að lokum lagið fyrir viðstadda. Blaðamaður freistaði þess að ná söngnum á myndband og heyrist vel í kröftugum söngi barnanna þrátt fyrir…Lesa meira

true

Hækka fjárveitingu til viðhalds tveggja varnarlína

Í kjölfar riðutilfella í Miðfirði sem upp komu í apríl sendi Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, þingmaður Framsóknar í Norðvesturkjördæmi, fyrirspurn til matvælaráðherra um varnarlínur sauðfjársjúkdóma. Þar með talið um hvaða varnarlínum ráðherra hafi ákveðið að viðhalda á árinu 2023, hver kostnaður við viðhald varnarlína hefur verið á síðustu árum og hver sé áætlaður kostnaður vegna fyrirhugaðs…Lesa meira

true

Skora á bæjarráð að breyta verklagi vegna skemmtanahalds

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar í gær var tekið fyrir erindi starfshóps Brúarinnar sem er forvarnarhópur á vegum Akraneskaupstaðar þar sem hann skorar á bæjarráð að breyta verklagi við veitingu áfengisleyfis á þann hátt að þegar aðilar óska eftir leyfi til að vera með vínveitingar á skemmtunum sem eru opnar almenningi, verði leitað umsagnar forvarnarfulltrúa og…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Kára kominn í hús

Elliði og Kári mættust í 3. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Würth vellinum í Árbænum. Fyrir leik voru Káramenn án sigurs í deildinni en lið Elliða með tvo sigra og eitt tap. Það var ljóst frá fyrstu mínútu að gestirnir úr Kára ætluðu sér að fá eitthvað út úr…Lesa meira

true

Vilja láta endurskoða starfsleyfi stóriðju og stöðva hvalveiðar

Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð var haldinn 24. maí síðastliðinn. Fundurinn sendir frá sér tvær ályktanir, annars vegar um mengun frá stóriðju og hins vegar um hvalveiðar. „Aðalfundur… [] skorar á ríkisstjórn Íslands að láta fara fram endurskoðun á starfsleyfum stóriðjufyrirtækjanna á Grundartanga, með það að markmiði að þau dragi nú þegar úr losun mengandi efna…Lesa meira

true

Auglýsingafrestur í dag vegna Sjómannablaðs Skessuhorns

Sjómannablað Skessuhorns kemur út í næstu viku, miðvikudaginn 31. maí. Það verður að stærstum hluta helgað störfum sjómanna í tilefni þess að Sjómannadagurinn er sunnudaginn 4. júní. Rætt verður við sjómenn víðsvegar um Vesturland um störf þeirra og leik. Þeim sem vilja koma auglýsingum á framfæri í þetta blað er bent á að frestur til…Lesa meira

true

Tilkynningar um heimilisofbeldi til lögreglu – breyting á lögum um heilbrigðisstarfsmenn

Samþykkt hefur verið á Alþingi frumvarp Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra til breytingar á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Með lagabreytingunni eru skýrðar heimildir heilbrigðisstarfsfólks til að tilkynna lögreglu um heimilisofbeldi í samráði við þolanda sem leitar á heilbrigðisstofnun. Tilgreint er hvaða upplýsingum er heimilt að miðla til lögreglu þannig að henni sé kleift að gera viðeigandi ráðstafanir…Lesa meira

true

Tónleikar tveggja sinfóníuhljómsveita í Reykholtskirkju

Nú um hvítasunnuhelgina kemur til Íslands sinfóníuhljómsveit frá Þýskalandi; Strohgäu Sinfonieorchester, og sækir heim Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Báðar sveitirnar eru skipaðar áhugatónlistarfólki og hafa starfað um áratuga skeið. Þriðjudaginn 30. maí og föstudaginn 2. júní leiða hljómsveitirnar saman hesta sína og flytja tónlistina úr gamanóperunni Leðurblökunni eftir valsakónginn Jóhann Strauss. Fyrri tónleikarnir verða haldnir í Langholtskirkju…Lesa meira

true

Nemendaferð Heiðarskóla til Brighton

Þessa dagana eru nemendur 9. og 10. bekkjar Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit í vorferðalagi í Brighton á Englandi. Nemendur höfðu lagt mikið á sig við að safna fyrir ferðinni með dyggum stuðningi forráðamanna, styrkjum frá fyrirtækjum og Hvalfjarðarsveit. Fram kemur á heimasíðu skólans að hópurinn hafi lent í Lundúnum á þriðjudaginn og farið síðan með rútu…Lesa meira