Eymar Einarsson á Akranesi er einn fjölgmargra sjómanna sem rætt verður við í Sjómannablaði Skessuhorns að þessu sinni. Ljósm. frá því í byrjun janúar síðastliðins.

Auglýsingafrestur í dag vegna Sjómannablaðs Skessuhorns

Sjómannablað Skessuhorns kemur út í næstu viku, miðvikudaginn 31. maí. Það verður að stærstum hluta helgað störfum sjómanna í tilefni þess að Sjómannadagurinn er sunnudaginn 4. júní. Rætt verður við sjómenn víðsvegar um Vesturland um störf þeirra og leik.

Þeim sem vilja koma auglýsingum á framfæri í þetta blað er bent á að frestur til þess rennur út klukkan 14 í dag, föstudaginn 26. maí. Sá stutti frestur er sökum þess að næsti mánudagur er rauður í dagatalinu. Bent er á síma 433-5500 og netfangið auglysingar@skessuhorn.is

Auglýsingafrestur í dag vegna Sjómannablaðs Skessuhorns - Skessuhorn