
Skora á bæjarráð að breyta verklagi vegna skemmtanahalds
Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar í gær var tekið fyrir erindi starfshóps Brúarinnar sem er forvarnarhópur á vegum Akraneskaupstaðar þar sem hann skorar á bæjarráð að breyta verklagi við veitingu áfengisleyfis á þann hátt að þegar aðilar óska eftir leyfi til að vera með vínveitingar á skemmtunum sem eru opnar almenningi, verði leitað umsagnar forvarnarfulltrúa og eða starfshópsins áður en leyfi verði veitt. Einnig verði ávallt gerð krafa um að með leyfinu sé krafa um að við gæslu séu viðurkenndir dyraverðir, að ekki séu áfengisauglýsingar, að börnum sé ekki heimilaður aðgangur, að bannað sé að bera áfengi út af stöðum og að ef aldurstakmark er 18 ár að tryggt sé að fólk undir 20 ára megi ekki fá afgreiðslu á áfengi né drekka á staðnum.