Fréttir

true

Dauðir lundar við Faxaflóa skipta þúsundum – myndir

Lundi hefur í stórum stíl verið að drepast síðustu daga við strendur Faxaflóa. Fuglinum skolar á land ýmist dauðum eða endar lífdaga sína í fjörunni. Þekkt er að lundinn getur átt erfitt uppdráttar í þrálátum vestanáttum eins og verið hafa ríkjandi að undanförnu. Óvenjulegt er hins vegar að fuglinn drepist í stórum stíl á þessum…Lesa meira

true

Gul viðvörun er að taka gildi

Í dag er gul viðvörun í gildi vegna hvassviðris og úrkomu um allt norðanvert landið. Á það við um spásvæðin Breiðafjörð, Vestfirði og Norðurland. Um Breiðafjarðarsvæðið segir um tímabilið frá hádegi og til miðnættis í kvöld: „Suðvestan 15-20 m/s, einkum á Snæfellsnesi og í Dölunum, og búast má við vindhviðum yfir 25 m/s. Fólk er…Lesa meira

true

Gerir Leifa AK kláran til sölu

Jóhannes Eyleifsson, sem margir þekkja betur undir heitinu Hanni á Lögbergi, hefur stundað sjómennsku í 62 ár frá Akranesi. Alltaf verið á grásleppu en þess á milli á hefðbundnum neta- og línuveiðum á báti sínum Leifa AK-2. „En nú er ég hættur,“ segir Hanni í samtali við Skessuhorn, en hann er fæddur lýðveldisárið 1944. Sökum…Lesa meira

true

Hefur opnað myndlistarsýningu í Samkomuhúsinu Arnarstapa

Anne Herzog er fædd árið 1984 í Normandy. Hún er listakona með franskan og íslenskan bakgrunn sem starfar á Snæfellsnesi. Anne er með mastersgráðu í kvikmyndagerð frá Sorbonne, en auk þess með próf í myndlist, menningarstjórnun og kennslufræði frá Háskóla Íslands. Anne hefur nú opnað myndlistarsýningu í Samkomuhúsinu Arnarstapa á Snæfellsnesi. Sýningin verður opin til…Lesa meira

true

Gul viðvörun fyrir Breiðafjörð og norðanvert landið

Fyrir morgundaginn, mánudaginn 29. maí, hefur Veðurstofan gefið út gula viðvörun vegna hvassviðris. Á það við um spásvæðin Breiðafjörð, Vestfirði og Norðurland. Um Breiðafjarðarsvæðið segir um tímabilið frá hádegi og til miðnættis annað kvöld: „Suðvestan 15-20 m/s, einkum á Snæfellsnesi og í Dölunum, og búast má við vindhviðum yfir 25 m/s. Fólk er hvatt til…Lesa meira

true

Fjörutíu brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar

Síðastliðinn föstudag voru 40 nemendur brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Elinóra Ýr Kristjánsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema. Minnti hún samnemendur sína á að dagurinn væri stór áfangi en samt einungis byrjunin. Elinóra sagði m.a.: „Það mikilvægasta sem að við höfum lært á menntaskólaárunum er ef til vill eitthvað allt annað. Að læra…Lesa meira

true

Útskrift frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Föstudaginn 26. maí var 36. útskriftin haldin frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga og hafa þá 560 nemendur útskrifast frá skólanum frá því hann tók til starfa. Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari útskrifaði 19 nemendur. Af þeim voru fimm fjarnemendur og fjórir nemendur sem hafa stundað námið frá Framhaldsdeildinni á Patreksfirði. Af félags- og hugvísindabraut útskrifuðust fimm nemendur, af náttúru-…Lesa meira

true

Lundar að drepast í hundraða tali við strendur Faxaflóa

Lundi hefur síðustu daga í stórum stíl verið að drepast og skolað á land við strendur Faxaflóa. Þekkt er að lundinn getur átt erfitt uppdráttar í þrálátum vestanáttum eins og verið hafa ríkjandi að undanförnu. Lundinn verpir einkum í eyjum og er talið að stærsta varpið við Faxaflóa sé í Knarrarnesi og Hjörsey úti af…Lesa meira

true

Var viðþolslaus og fór því suður til að sjá síðustu skákirnar í einvígi aldarinnar

Viðtal við rafvirkjann og skákáhugamanninn Jón Trausta heitinn Markússon í Búðardal Viðtal í Skessuhorni frá árinu 2013 Stundum virðast forlögin og hendingar ráða því hvar fólk setur sig niður til framtíðar búsetu. Þannig virðist það hafa verið með Jón Trausta Markússon rafvirkja í Búðardal. Jón ætlaði ekki að fara í rafvirkjun en atvikin höguðu því…Lesa meira

true

Bílahönnuðurinn varð tannlæknir

Viðtal í jólablaði Skessuhorns árið 2013 Í lífinu setur fólk stefnuna á ýmislegt og er tilbúið að leggja á sig ýmsar krókaleiðir til að ná settu marki, svo sem í námi. En svo getur það líka sannast sem maðurinn sagði að „enginn veit fyrr en allt í einu“. Það er að viðkomandi fái hreinlega vitrun…Lesa meira