Fréttir

true

Svekkjandi tap hjá Reynismönnum

Reynir Hellissandi tók á móti liði Harðar frá Ísafirði í A riðli 5. deildar karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Markalaust var eftir fyrri hálfleikinn en í þeim seinni fóru hlutirnir að gerast. Carlos Casanovas Ruiz skoraði fyrir Reyni eftir tveggja mínútna leik úr vítaspyrnu og skömmu síðar skoraði Daníel Agnar…Lesa meira

true

Skallagrímur kominn á blað

Tindastóll og Skallagrímur mættust í 4. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn á Sauðárkróksvelli. Skallagrímur hafði tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni en Tindastóll var með einn sigur og eitt tap. Arnar Ólafsson kom heimamönnum yfir eftir hálftíma leik en tíu mínútum síðar náði Maximiliano Cuarniello að jafna metin fyrir gestina.…Lesa meira

true

Leikskólafólk og starfsfólk íþróttamannvirkja komið í verkfall

Í dag hófust verkföll í leikskólum í Borgarbyggð, Grundarfirði, Stykkishólmi, Snæfellsbæ og Sauðárkróki. Þá er nú þriðji dagur í verkfalli félagsmanna Kjalar, sem starfa í sundlaugum og íþróttamannvirkjum á vegum sveitarfélaga. Sá hópur kom saman á samstöðufundi í morgun og sendi frá sér eftirfarandi áskorun: „Það er fjarstæðukennt að árið 2023 sjái sveitar- og bæjarstjórar…Lesa meira

true

Skagamenn náðu í sinn fyrsta sigur

Leiknir Reykjavík og ÍA áttust við í miklum rok- og rigningarleik í Lengjudeild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn á Domusnova vellinum í Breiðholti. Skagamenn byrjuðu vel og komust yfir strax á fjórðu mínútu þegar Steinar Þorsteinsson átti stungusendingu inn fyrir vörn Leiknismanna og Gísli Laxdal Unnarsson kláraði færið vel. Í kjölfarið sóttu…Lesa meira

true

ÍR valtaði yfir Víking Ólafsvík

Það er óhætt að segja að leikmenn Víkings Ólafsvík hafi ekki riðið feitum hesti frá viðureign sinni gegn liði ÍR í 2. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið, en leikurinn fór fram í Breiðholtinu. Bæði lið höfðu farið vel af stað í deildinni, voru með sjö stig og þar með enn ósigruð. Heimamenn herjuðu á…Lesa meira

true

Svipmyndir frá Grundarfjarðarhöfn

Lífið gengur sinn vanagang á höfninni í Grundarfirði þessi misserin þó svo að brælur og leiðinda veður setji strik í reikninginn. Lítið var róið hjá strandveiðibátum í síðustu viku vegna veðurs en á hvítasunnudag komu skipin Jóhanna Gísladóttir, Vörður og Áskell inn til löndunar. Landað var úr Jóhönnu á sunnudaginn en úr Verði og Áskeli…Lesa meira

true

ABBA skvísur gerðu sér glaðan dag

Það var létt yfir þessum hópi kvenna sem kom saman í veiðishúsinu við Norðurá um síðustu helgi. Að stofni til er þetta hópur hestakvenna úr Mosfellsbæ, en í honum eru einnig konur héðan af Vesturlandi, m.a. þær Gunna Fjeldsted, Þóra á Grenjum, Soffía á Hvanneyri og Ásdís á Álftanesi. Hópur þessi hefur undanfarin tuttugu ár…Lesa meira

true

Eldri borgarar slitu vetrarstarfinu með glæsibrag

Í vetur hefur verið mikið og skemmtilegt starf í Líkamsræktinni í Grundarfirði þar sem þær Ágústa Einarsdóttir og Rut Rúnarsdóttir halda utan um heilsueflingu 60 plús. Mikill fjöldi hefur sótt æfingar og hreyfingu og er þetta orðið ómissandi hluti af daglegu lífi eldri Grundfirðinga. Fimmtudaginn 25. maí var svo starfinu slitið með íþróttakeppni. Keppt var…Lesa meira

true

Sóttu vélarvana bát

Björg, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Rifi, var boðuð út rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi, til aðstoðar bát sem misst hafði vélarafl. Var hann staddur skammt norðan við Rif. Vel gekk að koma taug á milli báta og var sá afllausi dreginn til hafnar.Lesa meira