Áskell ÞH liggur við landfestar á meðan Vörður leggst að bryggju. Fyrir aftan þá er Jóhanna Gísladóttir. Ljósm. tfk

Svipmyndir frá Grundarfjarðarhöfn

Lífið gengur sinn vanagang á höfninni í Grundarfirði þessi misserin þó svo að brælur og leiðinda veður setji strik í reikninginn. Lítið var róið hjá strandveiðibátum í síðustu viku vegna veðurs en á hvítasunnudag komu skipin Jóhanna Gísladóttir, Vörður og Áskell inn til löndunar. Landað var úr Jóhönnu á sunnudaginn en úr Verði og Áskeli í gær.

Svipmyndir frá Grundarfjarðarhöfn - Skessuhorn