Hér eru saman komin hópurinn frá Rimmugýgi, starfsmenn Eiríksstaða, sveitarstjóri Dalabyggðar og nokkrir ferðamenn. Ljósm. Eiríksstaðir/bj

Nýtt tilgátuhús verður reist á Eiríksstöðum – Myndir frá víkingahátíð og skóflustungu

Um næstsíðustu helgi var haldin hátíðin Torf og trefjar á Eiríksstöðum í Haukadal. Þar mættu víkingar úr félaginu Rimmugýgi og unnið var með handverk af ýmsu tagi, leikir og bardagar, ásamt glímusýningu. Það má þó segja að veðrið hafi ekki verið upp á það besta; Stormur, haglél og rigning til skiptis. Ungir iðkendur glímu í Dalabyggð komu og kenndu víkingum handbrögðin, en fengu líka til baka smá leiðsögn í að berjast með sverðum. Dagskráin riðlaðist allnokkuð vegna veðurs og var laugardeginum varið að miklu leyti í að verja búnað og fólk fyrir ágangi veðurguðanna. Haft var á orði að þrumuguðinn Þór hafi ekki fengið nógu spennandi fórnir fyrir hátíðina.

Nýtt tilgátuhús verður reist á Eiríksstöðum - Myndir frá víkingahátíð og skóflustungu - Skessuhorn