Gul viðvörun fyrir Breiðafjörð og norðanvert landið

Fyrir morgundaginn, mánudaginn 29. maí, hefur Veðurstofan gefið út gula viðvörun vegna hvassviðris. Á það við um spásvæðin Breiðafjörð, Vestfirði og Norðurland. Um Breiðafjarðarsvæðið segir um tímabilið frá hádegi og til miðnættis annað kvöld: „Suðvestan 15-20 m/s, einkum á Snæfellsnesi og í Dölunum, og búast má við vindhviðum yfir 25 m/s. Fólk er hvatt til þess að huga að lausamunum. Varasamt ferðaveður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.“

Fólki til hugarhægðar verður þetta síðasta lægðin sem gengur yfir landið í bili. Frá miðvikudegi mun hlýna til muna á öllu landinu, en mest þó á norðausturlandi.

Gul viðvörun fyrir Breiðafjörð og norðanvert landið - Skessuhorn