
Dauðir lundar við Faxaflóa skipta þúsundum – myndir
Lundi hefur í stórum stíl verið að drepast síðustu daga við strendur Faxaflóa. Fuglinum skolar á land ýmist dauðum eða endar lífdaga sína í fjörunni. Þekkt er að lundinn getur átt erfitt uppdráttar í þrálátum vestanáttum eins og verið hafa ríkjandi að undanförnu. Óvenjulegt er hins vegar að fuglinn drepist í stórum stíl á þessum árstíma og því gæti slæm fuglaflensa herjað á stofninn, þótt það séu einungis getgátur þar til vísindamenn hafa greint hræin. Fuglinn verpir einkum í eyjum eða klettum við sjó og er talið að stærsta varpið við Faxaflóa sé í Knarrarnesi og Hjörsey úti af Mýrum. Enn stærra lundavarp er á Breiðafirði, en þaðan hafa ekki borist sambærilegar fréttir um fugladauða. Þá herma fréttir af Norðurlandi að ástand lundastofnsins þar sé ágætt.