Fréttir

true

Útgerðin hefur verið opnuð á Hellissandi

Lífstílsverslunin Útgerðin, sem stofnuð var árið 2019 í Pakkhúsinu í Ólafsvík, hefur nú verið færð um set. Fimmtudaginn 4. maí var verslunin opnuð í gamla pósthúsinu á Hellissandi, nánar tiltekið við Klettsbúð 7. Það eru hjónin Rut Ragnarsdóttir og Heimir Berg Vilhjálmsson sem reka verslunina og hafa gert frá upphafi en Útgerðin selur íslenska hönnun…Lesa meira

true

Andlát – Grétar Einarsson á Hvanneyri

Grétar Einarsson fyrrverandi kennari og vísindamaður á Hvanneyri er látinn, 82 ára að aldri. Starfsfólk Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri minnist Grétars, enda starfaði hann og bjó í 36 ár á staðnum ásamt Hafdísi Rut Pétursdóttur eiginkonu sinni og tóku þau virkan þátt í samfélaginu þar. Eftirfarandi pistill var ritaður á heimasíðu LbhÍ þar sem Grétars…Lesa meira

true

Fín bleikja úr Hraunsfirði

Stangveiðin er óðum að byrja og veiðimenn víða að leita að fiski þessa dagana. Fyrstu veiðimenn eru búnir að fara í Hraunsfjörðinn á Snæfellsnesi til veiða og það skilaði fiski. Hrannar Örn Hauksson var á veiðislóðum í Hraunsfirði og gefum honum orðið: „Ég og pabbi tókum smá vettvangsferð og kíktum í Hraunsfjörð fyrir fáum dögum…Lesa meira

true

Kynning á lokaverkefnum FSN

Útskriftarnemendur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga kynntu lokaverkefni sín mánudaginn 8. maí fyrir fullum sal í skólanum. Alls voru tólf nemendur sem kynntu verkefnin sín úr áfanganum LOKA3VE05 en svo voru fimm nemendur í fjarnámi sem skila sínum verkefnum rafrænt. Verkefnin voru glæsileg og fjölbreytt. Kynningarmyndbönd, hlaðvörp og svo listaverk og handavinnuverk. Verkefnin verða nú metin til…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Helga Haraldsdóttir

Matreiðslumeistarinn Helga Haraldsdóttir er uppalin í Reykhólasveit til tólf ára aldurs en flutti þá í Dalina. Þar var hún ekki alls ókunn því rætur hennar liggja þar en mamma hennar Guðbjörg Björnsdóttir er mikil Dalakona, fædd þar og uppalin. Helga er mjög gefin fyrir athygli og hefur gaman af gríni. Segist hún hafa verið glaðlynt…Lesa meira

true

Nýir rekstraraðilar taka við Crossfitstöðinni Ægi

Félagarnir Gerald Brimir Einarsson og Helgi Arnar Jónsson tóku nýlega við sem rekstraraðilar í Crossfitstöðinni Ægi sem er staðsett við Vesturgötu á Akranesi. Blaðamaður Skessuhorns kom við í Ægi í vikunni og hitti þar að máli Gerald Brimi sem var meira en til í smá spjall. Gerald segir að hann og Helgi Arnar séu búnir…Lesa meira

true

Ansi spenntir fyrir sumrinu

Skallagrímur leikur í fjórðu deildinni í fótbolta fjórða árið í röð í sumar en liðið féll úr þeirri þriðju árið 2019. Liðið endaði í þriðja sæti í A riðli fjórðu deildar í fyrra, vann ellefu leiki og tapaði þremur. Eftir tímabilið leit allt út fyrir að Skallagrímur myndi spila í 5. deild á næsta tímabili…Lesa meira

true

Næturlokanir í Hvalfjarðargöngum

Vegna viðhaldsvinnu og þrifa voru Hvalfjarðargöng lokuð síðustu nótt. Vanhöld voru af hálfu Vegagerðarinnar á að vara við lokuninni og engar tilkynningar til að mynda sendar á staðarmiðla. Því kom lokunin mörgum vegfarendum í opna skjöldu, sem urðu því að aka veginn fyrir Hvalfjörð. En hreinsun heldur áfram næstu nætur; „verða Hvalfjarðargöng lokuð aðfararnætur fimmtudags…Lesa meira

true

Ákvað að hanna íþróttaföt sjálf vegna lítils úrvals á Íslandi

Borgnesingurinn Karen Ýr Finnbogadóttir opnaði nú í apríl netverslunina Ambetic.com. Þar selur hún Ambetic íþróttaföt en hún hannar þau sjálf í samvinnu við erlenda saumastofu. Nafnið Ambetic segir Karen að sé samsuða orðanna ambitious athletic, á íslensku; metnaðarfullur íþróttamaður. „Það var mjög erfitt að finna nafn á vörumerkið en þetta varð að lokum lendingin,“ segir…Lesa meira

true

Breiðfirðingur ársins kominn út

Tímaritið Breiðfirðingur er komið úr prentun og var kynnt á Degi Breiðfirðings sunnudaginn 7. maí í Breiðfirðingabúð. Í tilkynningu um efni í ritinu að þessu sinni segir á FB síðu Breiðfirðingafélagsins: „Efni ritsins er fjölbreytt að vanda. Hryggjarstykkið má telja merka grein Sverris Jakobssonar prófessors um Völd og auð við Breiðafjörð á fimmtándu öld. Í…Lesa meira