Skinkuhorn – Helga Haraldsdóttir

Matreiðslumeistarinn Helga Haraldsdóttir er uppalin í Reykhólasveit til tólf ára aldurs en flutti þá í Dalina. Þar var hún ekki alls ókunn því rætur hennar liggja þar en mamma hennar Guðbjörg Björnsdóttir er mikil Dalakona, fædd þar og uppalin. Helga er mjög gefin fyrir athygli og hefur gaman af gríni. Segist hún hafa verið glaðlynt barn og sterkur karakter, þrjósk og ákveðin. Sem barn var hún fljót að taka eftir því að hún væri öðruvísi en krakkarnir í kringum sig. Hún var stór og sterk og að sögn strákaleg. Hún vildi til að mynda aldrei klæðast kjólum þótt samfélagið væri sífellt að segja henni að hún ætti að gera það. Hún hefur í gegnum lífið glímt við mikið þunglyndi á köflum og voru unglingsárin henni sérstaklega erfið. Um tvítugt kom hún út úr skápnum og hefur hún síðustu ár verið virk í hinsegin samfélaginu á Íslandi, t.a.m. setið í stjórn Hinsegin daga undanfarin fjögur ár. Segir hún að það gefi sér mikið að vera í kringum annað hinsegin fólk, því þar geti hún speglað sig. Í dag er Helga matreiðslumeistari, yfirkokkur á veitingastaðnum Mat og Drykk og á og rekur sitt eigið fyrirtæki, Kandís, sem framleiðir brjóstsykur innblásinn af íslenskri náttúru.