Andlát – Grétar Einarsson á Hvanneyri

Grétar Einarsson fyrrverandi kennari og vísindamaður á Hvanneyri er látinn, 82 ára að aldri. Starfsfólk Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri minnist Grétars, enda starfaði hann og bjó í 36 ár á staðnum ásamt Hafdísi Rut Pétursdóttur eiginkonu sinni og tóku þau virkan þátt í samfélaginu þar. Eftirfarandi pistill var ritaður á heimasíðu LbhÍ þar sem Grétars er minnst:

„Grétar Einarsson fyrrum starfsmaður Landbúnaðarháskóla Íslands er látinn. Að loknu búnaðarnámi hér heima og rannsóknanámi við Landbúnaðarháskólann í Kaupmannahöfn hóf hann föst störf hjá Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins árið 1974. Jafnframt þeim gerðist hann stundakennari við Bændaskólann á Hvanneyri. Föstu starfi lauk Grétar við kennslu og rannsóknir hjá Landbúnaðarháskóla Íslands árið 2010. Bútækni var sérsvið Grétars. Hann stjórnaði m.a. búvélaprófunum og -rannsóknum um langt árabil og tók virkan þátt í norrænu samstarfi á því sviði. Leiðbeiningar um val og meðferð búvéla urðu stór hluti af starfi Grétars. Þess naut þorri íslenskra bænda með kennslu hans, fræðslugreinum, námskeiðum og ótal bændafundum. Endurkomu plógsins í jarðyrkju hérlendis má t.d. rekja til rannsókna Grétars á og hagnýtri fræðslu um plægingar með nútíma tækni. Gagnmerkar rannsóknir gerði hann einnig á húsvist búfjár og vinnuaðstöðu bænda við gripahirðingu. Í öllum þessum störfum naut hann óskoraðs trausts þeirra mörgu sem verka hans nutu. Með ævistarfi sínu tengdi Grétar saman rannsóknir og þróun bútæknifræða og þarfir bænda á hröðu breytingaskeiði íslensks landbúnaðar. Hann leitaðist jafnan við að breyta fræðum í hagfelldan árangur búskapar bænda.

Landbúnaðarháskóli Íslands þakkar Grétari Einarssyni mikið og óeigingjarnt ævistarf og sendir fjölskyldu hans innilega samúðarkveðju.“

Andlát – Grétar Einarsson á Hvanneyri - Skessuhorn