Björn Sólmar og Viktor Már eru þjálfarar Skallagríms. Ljósm. aðsend

Ansi spenntir fyrir sumrinu

Skallagrímur leikur í fjórðu deildinni í fótbolta fjórða árið í röð í sumar en liðið féll úr þeirri þriðju árið 2019. Liðið endaði í þriðja sæti í A riðli fjórðu deildar í fyrra, vann ellefu leiki og tapaði þremur. Eftir tímabilið leit allt út fyrir að Skallagrímur myndi spila í 5. deild á næsta tímabili en í byrjun febrúar dró lið Einherja á Vopnafirði sig úr keppni í 3. deild. Það leiddi til þess að Skallagrímur tók sæti Ýmis úr Kópavogi í 4. deild sem síðan tók sæti Einherja í 3. deild.  Björn Sólmar Valgeirsson og Viktor Már Jónasson tóku við liði Skallagríms í byrjun apríl í stað Declan Redmond og Viktors Inga Jakobssonar sem stjórn knattspyrnudeildar Skallagríms hafði ráðið sem þjálfara meistaraflokks fyrr í vetur.

Ansi spenntir fyrir sumrinu - Skessuhorn