
Á göngu við Hraunsfjörðinn. Ljósm. Hrannar Örn.
Fín bleikja úr Hraunsfirði
Stangveiðin er óðum að byrja og veiðimenn víða að leita að fiski þessa dagana. Fyrstu veiðimenn eru búnir að fara í Hraunsfjörðinn á Snæfellsnesi til veiða og það skilaði fiski. Hrannar Örn Hauksson var á veiðislóðum í Hraunsfirði og gefum honum orðið: „Ég og pabbi tókum smá vettvangsferð og kíktum í Hraunsfjörð fyrir fáum dögum í fínu veðri. Í stuttu máli urðum við ekki varir í hrauninu og sáum ekki einn fisk vaka. Þá færðum við okkur yfir hinum megin. Þar náði ég einum fiski fljótlega eftir að við komum í víkina inn að grjótgarðinum, tveggja punda og hann hann tók Dýrbít orange. En ekkert bingó og einn fiskur var niðurstaðan. Líklega þarf lífríkið nokkra góðviðrisdaga í vibót til að kveikja í veiðinni af meiri krafti,“ sagði Hrannar Örn.