Opnun Útgerðarinnar 4. maí heppnaðist frábærlega og var mæting með besta móti. Ljósm. Útgerðin.

Útgerðin hefur verið opnuð á Hellissandi

Lífstílsverslunin Útgerðin, sem stofnuð var árið 2019 í Pakkhúsinu í Ólafsvík, hefur nú verið færð um set. Fimmtudaginn 4. maí var verslunin opnuð í gamla pósthúsinu á Hellissandi, nánar tiltekið við Klettsbúð 7. Það eru hjónin Rut Ragnarsdóttir og Heimir Berg Vilhjálmsson sem reka verslunina og hafa gert frá upphafi en Útgerðin selur íslenska hönnun í bland við sælkeravörur og aðrar sérvaldar hönnunarvörur. Segir Rut að opnun Útgerðarinnar í nýju húsnæði hafi heppnast frábærlega. „Það var mjög góð mæting hér á opnunina, margt fólk sem mætti til að gleðjast með okkur og okkur þykir svo ótrúlega vænt um það,“ segir Rut.