
Nýir rekstraraðilar taka við Crossfitstöðinni Ægi
Félagarnir Gerald Brimir Einarsson og Helgi Arnar Jónsson tóku nýlega við sem rekstraraðilar í Crossfitstöðinni Ægi sem er staðsett við Vesturgötu á Akranesi. Blaðamaður Skessuhorns kom við í Ægi í vikunni og hitti þar að máli Gerald Brimi sem var meira en til í smá spjall. Gerald segir að hann og Helgi Arnar séu búnir að vinna saman í rúmt ár en þeir eru með lítið fyrirtæki saman. „Við höfum oft talað um að okkur langaði að opna líkamsrækt en aldrei farið lengra en það. Einn daginn var ég í heimsókn hjá honum á Akranesi og við fórum að ræða að það væri snilld ef við kæmust inn í Ægi. Svo einhverjum vikum seinna fæ ég símtal frá honum og hann spyr hvort ég vilji taka við Ægi með honum. Ég sagði bara já, hringdi í konuna og spurði hvort hún vildi flytja upp á Akranes? Hún var til þannig að við kýldum bara á þetta.“