Nemendur og kennarar fylgjast af athygli með kynningunum.

Kynning á lokaverkefnum FSN

Útskriftarnemendur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga kynntu lokaverkefni sín mánudaginn 8. maí fyrir fullum sal í skólanum. Alls voru tólf nemendur sem kynntu verkefnin sín úr áfanganum LOKA3VE05 en svo voru fimm nemendur í fjarnámi sem skila sínum verkefnum rafrænt. Verkefnin voru glæsileg og fjölbreytt. Kynningarmyndbönd, hlaðvörp og svo listaverk og handavinnuverk. Verkefnin verða nú metin til lokaeinkunnar annarinnar sem er að líða undir lok en útskrift í skólanum verður 26. maí.

Kynning á lokaverkefnum FSN - Skessuhorn