Hvalfjarðargöng. Ljósm. Skessuhorn

Næturlokanir í Hvalfjarðargöngum

Vegna viðhaldsvinnu og þrifa voru Hvalfjarðargöng lokuð síðustu nótt. Vanhöld voru af hálfu Vegagerðarinnar á að vara við lokuninni og engar tilkynningar til að mynda sendar á staðarmiðla. Því kom lokunin mörgum vegfarendum í opna skjöldu, sem urðu því að aka veginn fyrir Hvalfjörð.

En hreinsun heldur áfram næstu nætur; „verða Hvalfjarðargöng lokuð aðfararnætur fimmtudags og föstudags, 11. og 12. maí, frá miðnætti og til klukkan 06:30. Ekki verður um fylgdarakstur að ræða. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningu sem finna má inni á vef Vegagerðarinnar.

Næturlokanir í Hvalfjarðargöngum - Skessuhorn