
Það var létt yfir Kristni Jónassyni bæjarstjóra í Snæfellsbæ þegar hann hitti að nýju styttuna af Guðríði Þorbjarnardóttur nú síðdegis í dag. Þá höfðu starfsmenn Vélsmiðjunnar Steðja á Akranesi náð henni út úr nokkurs konar eldflaugarskúlptúr sem tvær listakonur höfðu gert eftir að þær tóku styttuna ófrjálsri hendi á Laugarbrekku á Hellnum í liðnum mánuði.…Lesa meira








