Fréttir

true

Eftirlit verður aukið með blóðtökuhryssum

Matvælastofnun hefur gefið út skýrslu um eftirlit með velferð hryssna sem notaðar eru til í blóðtöku til vinnslu afurða. „Tíðni eftirlits með blóðtökubæjum er mun hærra en í öðru hrossahaldi en minna er um alvarleg frávik. Hörð viðurlög við alvarlegum frávikum við velferð blóðtökustóða, sem beitt hefur verið á seinni árum, virðast hafa átt mikinn…Lesa meira

true

Með vorinu færist aukið líf í hafnirnar

Samhliða sumarkomunni og batnandi veðri færist aukið líf í smábátahafnirnar við landið. Víða eru menn því farnir að huga að bátum sínum og veiðarfærum. Margir halda á sjóinn einungis til afþreyingar, en aðrir setja stefnuna á strandveiðar sem hefjast mánudaginn 2. maí næstkomandi. Meðfylgjandi myndir eru frá Akraneshöfn um liðna helgi. Vorblíðan lék við mannskapinn…Lesa meira

true

Þýskir krakkar í heimsókn í Brekkó

Í gær komu til landsins um 20 nemendur á aldrinum ellefu til tólf ára frá borginni Berlín í Þýskalandi og voru þau komin seinni partinn á Akranes þar sem tekið var á móti þeim með viðhöfn. Munu þau gista á íslenskum heimilum barna í 6. bekk Brekkubæjarskóla á meðan á dvöl þeirra stendur en heimför…Lesa meira

true

Fáir á grásleppu en veiða vel

Aðeins tveir bátar róa á grásleppu frá Snæfellsbæ, eins og staðan er núna. Að sögn Árna Einarssonar skipstjóra og útgerðarmanns á Hjördísi HU er góður gangur í veiðunum þessa dagana. „Við erum með 100 net í sjó en drögum 50 net á dag og erum að fá 2-3 tonn í þessi 50 net sem við…Lesa meira

true

Styttist í spennandi golfsumar

Nú styttist í að golfarar landsins geti farið að kíkja út á golfvöll og slá eina kúlu eða tvær. Starfsmenn golfvalla um allt land vinna nú hörðum höndum að koma völlunum sínum í stand fyrir sumarið og ljóst að margir golfarar bíða spenntir eftir að vellirnir opni. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í síðustu viku við í…Lesa meira

true

Engin slökkviskjóla tiltæk í landinu

Þessum árstíma fylgir einatt aukin hætta á gróðureldum, allt frá því í apríl og fram á mitt sumar þegar nýr gróður hefur náð yfirhöndinni í þurru landi. Eðli málsins samkvæmt hafa íbúar áhyggjur af gróðureldum og þá ekki síst íbúar í Skorradal þar sem flóttaleiðir eru fáar og eldsmatur mikill kvikni eldur. Hulda Guðmundsdóttir á…Lesa meira

true

Menningarsjóður Borgarbyggðar úthlutar

Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar úthlutaði úr sjóðnum á fundi sínum 26. apríl síðastliðinn. Alls hlutu fimm umsækjendur styrk; Snorrastofa vegna Barnamenningarhátíðar 300.000 kr., Theodór Kr. Þórðarson vegna ljóðabókar 200.000 kr. og Hollvinasamtök Varmalands vegna útgáfu á korti og skráningu örnefna 200.000 kr. Freyjukórinn fékk 150.000 kr. styrk til tónleikahalds, æfinga og söngbúða og Reynir Hauksson 250.000…Lesa meira

true

Ungur Borgnesingur komst áfram í tónlistarkeppni Upptakts

Keppni sem nefnist Upptakturinn eru tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna sem hér á landi hefur verið haldin frá 2012 í samstarfi Hörpunnar, Barnamenningarhátíðar, RÚV og Listaháskóla Íslands. Þar fær ungt fólk, með brennandi áhuga á tónlist og tónlistarsköpun, tækifæri til að senda tónsmíðar eða drög að þeim inn til keppni og vinna markvisst úr hugmyndum sínum…Lesa meira

true

Valgarður Lyngdal leiðir lista Samfylkingarinnar á Akranesi

Nýverið var listi Samfylkingarinnar á Akranesi kynntur til leiks. Í forystusæti hans er Valgarður Lyngdal Jónsson grunnskólakennari og forseti bæjarstjórnar. Þetta eru fjórðu kosningarnar sem hann tekur þátt í á Akranesi en hann var fyrst á lista árið 2006, skipaði annað sæti listans árið 2014 en tók forystusætið 2018 og svo aftur núna. Blaðamaður Skessuhorns…Lesa meira

true

Baggar og rafrettur eru sóðaskapur samtímans

Stóri plokkdagurinn var síðasta sunnudag og margir sem fóru þá út að plokka og létu félagar í Lionsklubbi Ólafsvíkur ekki sitt eftir liggja. Þeir eru í fjáröflunarverkefni í samstarfi við Vegagerðina og plokka rusl á 60 kílómetra kafla á völdum svæðum á Snæfellsnesi. Var fyrsti dagurinn í því verkefni á sunnudaginn. Eftir annað kvöldið sem…Lesa meira