Árni Einarsson á Hjördísi HU að landa og heldur hér á tveimur vænum grásleppum. Ljósm. af.

Fáir á grásleppu en veiða vel

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Aðeins tveir bátar róa á grásleppu frá Snæfellsbæ, eins og staðan er núna. Að sögn Árna Einarssonar skipstjóra og útgerðarmanns á Hjördísi HU er góður gangur í veiðunum þessa dagana. „Við erum með 100 net í sjó en drögum 50 net á dag og erum að fá 2-3 tonn í þessi 50 net sem við drögum.“ Árni segist landa grásleppunni á Fiskmarkað Snæfellsbæjar og fær þetta 150 til 200 krónur fyrir kílóið af óskorinni grásleppu. Þá segir hann að það sé sumarlegt að veiða grásleppu og stemning í kringum grásleppuveiðar, en Árni hyggst fara á strandveiðar þegar líður á sumarið.\r\n\r\nHinn grásleppubáturinn sem rær frá Ólafsvík er Rán SH og hefur sá bátur mokfiskað. Mestur var aflinn um tíu tonn í einni vitjun.",
  "innerBlocks": []
}
Fáir á grásleppu en veiða vel - Skessuhorn