
Bátur sjósettur á Akranesi. Ljósm. gsv.
Með vorinu færist aukið líf í hafnirnar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samhliða sumarkomunni og batnandi veðri færist aukið líf í smábátahafnirnar við landið. Víða eru menn því farnir að huga að bátum sínum og veiðarfærum. Margir halda á sjóinn einungis til afþreyingar, en aðrir setja stefnuna á strandveiðar sem hefjast mánudaginn 2. maí næstkomandi. Meðfylgjandi myndir eru frá Akraneshöfn um liðna helgi. Vorblíðan lék við mannskapinn og kjöraðstæður voru til að sjósetja bátana.\r\n\r\n<strong>Kvótinn verður tíu þúsund tonn</strong>\r\n\r\nSvandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um strandveiðar. Alls verða nú 10.000 tonn af þorski í strandveiðipottinum á þessu tímabili, þar af 1.500 tonn sem skiluðu sér af skiptimörkuðum á útmánuðum eins og við greindum frá í Skessuhorni. Hlutfall strandveiða af leyfilegum heildarafla þorsks nemur því 4,5% og hefur ekki hefur svo stórum hluta aflans áður verið úthlutað til strandveiða. „Þessari ákvörðun er ætlað að festa strandveiðar enn betur í sessi, en í dag fá margar fjölskyldur hluta sinna heimilistekna frá strandveiðum. Sá afli sem er til ráðstöfunar fyrir strandveiðar hverju sinni miðast við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og ákvörðun ráðherra um leyfilegan heildarafla,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.\r\n\r\nBrátt hefst því fjórtánda strandveiðisumarið frá því strandveiðum var komið á, en strandveiðar eru stundaðar frá maí til ágúst. Grunnhugsunin að baki strandveiðum er að stunda megi veiðar með ströndinni á sjálfbæran og ábyrgan hátt en jafnframt opna möguleika fyrir þau sem ekki hafa yfir aflamarki að ráða á að reyna fyrir sér í sjávarútvegi.",
"innerBlocks": []
}