Fréttir

true

Íslandsmeistaramótið í bekkpressu fór fram um helgina

Vestlendingar á verðlaunapalli Íslandsmeistaramótið í klassískri bekkpressu og í bekkpressu (með búnaði) fór fram sunnudaginn 24. apríl og átti Kraftlyfingafélag Akraness tvo keppendur sem kepptu á báðum mótunum. Einar Örn Guðnason varð Íslandsmeistari í -120 kg flokki karla bæði í klassískri bekkpressu, með 185 kg sem þyngstu lyftu, og bekkpressu með búnaði þar sem 265…Lesa meira

true

Strandveiðikvótinn verður tíu þúsund tonn

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um strandveiðar, en þær hefjast 2. maí næstkomandi. Alls verða nú 10.000 tonn af þorski í strandveiðipottinum á þessu tímabili, þar af 1.500 tonn sem skiluðu sér af skiptimörkuðum á útmánuðum og ráðherra ákvað að bæta í strandveiðipottinn. Hlutfall strandveiða af leyfilegum heildarafla þorsks nemur því 4,5% og…Lesa meira

true

Skipt um elsta hluta þekjunnar á Grundarfjarðarhöfn

Almenna umhverfisþjónustan vinnur þessa dagana hörðum höndum að brjóta upp elsta hluta þekjunnar á Grundarfjarðarhöfn en hluti hennar var farinn að síga töluvert og kominn tími á endurnýjun. Skipt verður um raflagnir í leiðinni en nýjar og stærri lagnir verða lagðar í raftengikassa fyrir skipin.Lesa meira

true

Mozart færir sig um set

Hárnyrtistofan Mozart mun loka á Skagabraut 31 þann 1. maí næstkomandi en stofan hefur verið þar til húsa síðastliðin 18 ár. Stefanía Sigurðardóttir, eigandi Mozart, mun halda áfram rekstri á Dvalarheimilinu Höfða þar sem hún hefur unnið samhliða rekstri Mozart síðustu þrjú ár og verður stofan öllum opin. Stefa er enginn nýgræðingur í þessum bransa…Lesa meira

true

Nýr húsvörður í Grundaskóla

Lárus Guðjónsson hefur verið ráðinn í starf húsumsjónarmanns í Grundaskóla á Akranesi. Húsvarðarstarf í Grundaskóla var lagt niður fyrir um áratug vegna skipulagsbreytinga hjá Akraneskaupstað en nú hefur verið ákveðið að endurvekja þetta starf í skólanum. Húsumsjónarmaður mun einnig sinna þjónustu við leikskólana Garðasel og Akrasel. Lárus mun hefja störf í Grundaskóla í byrjun júní.Lesa meira

true

Fjölskyldu- og skátamessa í sumarbyrjun

Fjölskyldumessa í samstarfi við Skátafélag Akraness var í Akraneskirkju fyrsta sumardag, síðastliðinn fimmtudag. Að sögn sr. Þóru Bjargar Sigurðardóttur hófst dagskráin með skrúðgöngu frá Tónlistarskólanum og að kirkjunni. Þar var stutt fjölskyldustund og mikið sungið. Hoppukastali og pylsur voru í boði á Bjargarsteinslóðinni við Vinaminni. Á þriðja hundrað gestir mættu og var mikil og góð…Lesa meira

true

Veruleg aukin umsvif í Grundarfjarðarhöfn

Landaður afli í Grundarfjarðarhöfn árið 2021 var 23.677 tonn og jókst um tæplega þriðjung frá árinu 2020 þegar ársaflinn var 18.482 tonn. Í janúar til mars á þessu ári var landað rétt tæpum níu þúsund tonnum í Grundarfjarðarhöfn og jókst landaður afli um ríflega 60% frá sama tímabili árið 2021, þegar landað var um 5.500…Lesa meira

true

Ný viðbygging við leikskólann í Stykkishólmi

Ný viðbygging við leikskólanna í Stykkishólmi hefur verið tekin í notkun en síðasta föstudagsmorgun mættu foreldrar með börnin sín á nýja Bakka. Að sögn leikskólastjóra var ekki annað að sjá en að börnin væru glöð með nýtt umhverfi enda búin að fylgjast grannt með framvindu byggingarinnar undanfarna mánuði. Fram kemur á vefsíðu Stykkishólmsbæjar að vegna…Lesa meira

true

Skagamenn skelltu Íslandsmeisturunum

ÍA og Víkingur Reykjavík mættust í 2. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær og fór leikurinn fram á Akranesvelli. Leikurinn fór rólega af stað en á 19. mínútu kom fyrsta færi leiksins þegar Eyþór Aron Wöhler átti góðan sprett og sendi boltann fyrir á Gísla Laxdal Unnarsson sem skaut að marki en markvörður…Lesa meira

true

Lokahóf Snæfells í körfunni

Lokahóf Körfuknattleiksdeildar Snæfells í Stykkishólmi var haldið síðasta miðvikudag og áttu meistaraflokkarnir ásamt stjórn góða stund saman. Að venju voru leikmenn verðlaunaðir fyrir árangur sinn í vetur og aðrir hvattir til þess að halda áfram þeirri góðu þróun sem hóparnir sýndu. Í meistaraflokki kvenna hlutu verðlaun fyrir tímabilið þau Rebekka Rán Karlsdóttir sem var mikilvægust,…Lesa meira