Ágúst Davíð Steinarsson tónskáld og nemandi í 10. bekk Grunnskólans í Borgarnesi. Hér framan við Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Ljósm. mm.

Ungur Borgnesingur komst áfram í tónlistarkeppni Upptakts

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Keppni sem nefnist Upptakturinn eru tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna sem hér á landi hefur verið haldin frá 2012 í samstarfi Hörpunnar, Barnamenningarhátíðar, RÚV og Listaháskóla Íslands. Þar fær ungt fólk, með brennandi áhuga á tónlist og tónlistarsköpun, tækifæri til að senda tónsmíðar eða drög að þeim inn til keppni og vinna markvisst úr hugmyndum sínum með fulltingi listnemenda og listamanna. Að þessu sinni voru 65 lög eða tónverk send inn í keppnina, en fjórtán voru valin til að verða útsett til flutnings hljómsveitar. Afrakstur af þeirri keppni mátti síðan sjá á tónleikum Upptaktsins sem fram fóru í Hörpu í Reykjavík 5. apríl síðastliðinn. Þar léku atvinnuhljóðfæraleikarar tónverkin sem valin höfðu verið. Meðal þeirra sem náðu áfram í keppninni í ár var fimmtán ára piltur úr Borgarnesi, Ágúst Davíð Steinarsson. Hann sendi til keppninnar lag sem hann nefnir Vals í C-moll. Hann er jafnframt fyrsti nemandi Tónlistarskóla Borgarfjarðar sem nær þetta langt í keppninni. Blaðamaður Skessuhorns hitti þennan unga og hæfileikaríka tónlistarmann að máli.\r\n\r\n<em>Sjá spjall við Ágúst Davíð í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Ungur Borgnesingur komst áfram í tónlistarkeppni Upptakts - Skessuhorn