
Rakel Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri Leynis. Ljósm. vaks.
Styttist í spennandi golfsumar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nú styttist í að golfarar landsins geti farið að kíkja út á golfvöll og slá eina kúlu eða tvær. Starfsmenn golfvalla um allt land vinna nú hörðum höndum að koma völlunum sínum í stand fyrir sumarið og ljóst að margir golfarar bíða spenntir eftir að vellirnir opni. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í síðustu viku við í Golfklúbbinn Leyni á Akranesi og hitti þar að máli Rakel Óskarsdóttur, framkvæmdastjóra. Rætt var um golfsumarið sem er framundan. Rakel segir starfið mjög fjölbreytt og mjög árstíðabundið, það sé vertíð í sex mánuði og eftir það uppgjör, frágangur, ársskýrsla og ýmislegt annað sem þarf að ljúka fyrir veturinn. Rakel tekur sér sumarfrí um miðjan desember og inn í janúar en eftir það hefst undirbúningur fyrir næsta sumar. Hún segir að starfið sé blanda af rekstri íþróttafélags og fyrirtækis og oft á tíðum hálfgert einyrkjastarf því hún sé yfirleitt ein á skrifstofunni að vetri til. Fjögur heilsárs störf eru hjá golfklúbbnum en auk Rakelar eru Einar Gestur vallarstjóri og Guðni Steinar starfsmaður golfvallarins í heilsársstarfi og þá er íþróttastjórinn Valdís Þóra í hlutastarfi.\r\n\r\n<em>Sjá spjall við Rakel í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}