Slökkviskjóla var fyrst prófuð hér á landið vorið 2009 þegar slökkviliðsæfing fór fram við Fíflholt á Mýrum. Ljósm. úr safni/mm.

Engin slökkviskjóla tiltæk í landinu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þessum árstíma fylgir einatt aukin hætta á gróðureldum, allt frá því í apríl og fram á mitt sumar þegar nýr gróður hefur náð yfirhöndinni í þurru landi. Eðli málsins samkvæmt hafa íbúar áhyggjur af gróðureldum og þá ekki síst íbúar í Skorradal þar sem flóttaleiðir eru fáar og eldsmatur mikill kvikni eldur. Hulda Guðmundsdóttir á Fitjum vakti athygli Skessuhorns á málinu og segist hafa fengið þær upplýsingar að staðan hjá Landhelgisgæslunni hvað varðar slökkviskjólu sé slæm; eina skjólan sem til er í landinu sé óvirk. „Þetta gerðist líka síðasta vor,“ rifjar Hulda upp, en þá voru tugir gróðurelda í landinu í þurru vori. Eina skjólan sem til var þá skemmdist í eldum í Heiðmörk. Hún segir að eini raunhæfi búnaðurinn til að slökkva skógarelda á frístundasvæðum sé slíkur slökkvibúnaður á allar þrjár þyrlur Landhelgisgæslunnar.\r\n\r\nNú er engin tiltæk slökkviskjóla í landinu, en slíkt líta menn alvarlegum augum í ljósi þeirrar gagnsemi sem þær hafa sýnt. Í svari Landhelgisgæslunnar við fyrirspurn Skessuhorns kemur fram að það eldvarnar- og slökkviliðsmál í landinu heyri undir innviðaráðuneytið, en ekki dómsmálaráðuneytið sem fer með málaflokk Landhelgisgæslunnar. <em>Nánar er fjallað um þetta í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Engin slökkviskjóla tiltæk í landinu - Skessuhorn