
Frá Borgarnesi. Ljósm. gj.
Menningarsjóður Borgarbyggðar úthlutar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar úthlutaði úr sjóðnum á fundi sínum 26. apríl síðastliðinn. Alls hlutu fimm umsækjendur styrk; Snorrastofa vegna Barnamenningarhátíðar 300.000 kr., Theodór Kr. Þórðarson vegna ljóðabókar 200.000 kr. og Hollvinasamtök Varmalands vegna útgáfu á korti og skráningu örnefna 200.000 kr. Freyjukórinn fékk 150.000 kr. styrk til tónleikahalds, æfinga og söngbúða og Reynir Hauksson 250.000 kr. fyrir tónlistarviðburði í Borgarfirði.\r\n\r\nNokkrum umsóknum var hafnað vegna þess að þær uppfylltu ekki úthlutunarreglur sjóðsins, en alls var 1.100.000 kr. úthlutað að þessu sinni. Styrkveitingar Menningarjsóðs Borgarbyggðar fara fram tvisvar ári, sú fyrri fer fram fyrir 1. maí og hin síðari fyrir 1. október. Í stjórn sjóðsins eru Brynja Þorsteinsdóttir formaður, Anna Lísa Hilmarsdóttir, Jenný Lind Egilsdóttir, Jóhanna Möller og Margrét Vagnsdóttir.",
"innerBlocks": []
}