Fréttir

true

Olís styrkir Golfklúbbinn Leyni

Golfklúbburinn Leynir á Akranesi og Olís endurnýjuðu nýverið styrktarsamning sín á milli. Samningurinn er til tveggja ára en Olís hefur verið einn af öflugustu bakhjörlum klúbbsins til nokkurra ára. Samningurinn var eitt af síðustu embættisverkum Gunnars Sigurðssonar, svæðisstjóra Olís á Vesturlandi, en hann hefur nú látið af störfum hjá fyrirtækinu. Það var Rakel Óskarsdóttur framkvæmdastjóri…Lesa meira

true

Benedikt Warén að láni til ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur fengið Benedikt V. Warén til liðs við félagið en hann kemur að láni frá Breiðabliki. Benó eins og hann er kallaður verður 21 árs á árinu og hefur leikið 31 leik fyrir meistaraflokk Breiðabliks og skorað í þeim fimm mörk. Þá lék hann tólf leiki fyrir Vestra í Lengjudeildinni á síðasta tímabili…Lesa meira

true

H-listinn í sameinuðu sveitarfélagi kynnir framboðslista sinn

Á fjölmennum fundi í gærkvöldi kynnti H-listinn – listi framfarasinna framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þá verður kosin ný sveitarstjórn í sameiginlegu sveitarfélagi Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar. Bæjar- og sveitarstjóraefni H-listans er Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar. Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, oddviti listans og forseti bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar segist vera full tilhlökkunar fyrir komandi kosningarbaráttu og komandi kjörtímabili. „H-listinn…Lesa meira

true

FVA tapaði í úrslitum í FRÍS

Tækniskólinn tryggði sér sigur á Framhaldsskólaleikum Rafíþróttasamtaka Íslands með sigri gegn Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í úrslitaviðureigninni síðastliðinn fimmtudag en keppnin var í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport. Þetta er annað árið í röð sem Framhaldsskólaleikarnir eru haldnir og í bæði skiptin hefur Tækniskólinn tekið bikarinn með sér heim. Skólarnir hófu leik í CS:GO…Lesa meira

true

Framboðslisti Samstöðu í Grundarfirði

L-listi Samstöðu í Grundarfirði hefur birt framboðslista sinn fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 14. maí næstkomandi. Garðar Svansson skipar oddvitasæti listans, en listinn er þannig í heild: Nr. 1. Garðar Svansson Nr. 2. Signý Gunnarsdóttir Nr. 3. Loftur Árni Björgvinsson Nr. 4. Pálmi Jóhannsson Nr. 5. Heiðdís Björk Jónsdóttir Nr. 6. Rakel Birgisdóttir Nr. 7. Heiðrún Hallgrímsdóttir Nr.…Lesa meira

true

Framboðslisti Sjálfstæðisflokks og óháðra í Grundarfirði

Búið er að birta lista Sjálfstæðisflokks og óháðra í Grundarfjarðarbæ fyrir kosningarnar 14. maí næstkomandi. Listinn hefur skipað meirihluta í bæjarstjórn undir forystu Jósefs Kjartanssonar, átt fjóra bæjarfulltrúa af sjö. Listinn er þannig: Nr. 1. Jósef Kjartansson, verktaki Nr. 2. Ágústa Einarsdóttir, framkvæmdastjóri, einka- og markþjálfi Nr. 3. Bjarni Sigurbjörnsson, bóndi Nr. 4. Sigurður Gísli…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin að hefja leik í Mjólkurbikarnum

Fyrsta umferð Lengjubikarsins í knattspyrnu karla hefst um næstu helgi og þar mæta til leiks lið af Vesturlandi. Kári frá Akranesi ríður á vaðið á laugardaginn þegar liðið tekur á móti Árborg í Akraneshöllinni klukkan 12. Víkingur Ólafsvík mætir Berserkjum/Mídasi á Víkingsvelli í Fossvoginum sama dag og hefst sá leikur klukkan 14. Sigurvegarar úr þessum…Lesa meira

true

Saxhamar og Magnús fiska vel á netaralli

Þrír bátar frá Snæfellsnesi eru í hópi sex báta sem taka þátt í netaralli Hafró þetta árið. Hefur afli verið mjög góður eða allt að 50 tonn eftir daginn. Á meðfylgjandi mynd er Saxhamar SH að koma að landi í Rifi með 50 tonna afla, en Saxhamar hefur fært sínar trossur sunnar með landinu og…Lesa meira

true

Sexfalt meiri eftirspurn en framboð af greiðslumarki í mjólk

Fyrsti tilboðsmarkaður ársins með greiðslumark í mjólk var haldinn 1. apríl síðastliðinn. Matvælaráðuneytinu bárust 162 gild tilboð um kaup og voru sölutilboð 19. Boðnir voru 1.309 þúsund lítrar til sölu en óskað eftir að kaupa 7.830 þúsund lítra, en það jafgildir því að eftirspurnin var sexfalt meiri en framboðið. Sérstök úthlutun til nýliða er 5%…Lesa meira

true

Nýr tækja- og mannskapsbíll til slökkviliðsins

Slökkvilið Borgarbyggðar hefur fest kaup á nýjum bíl í flotann. Bíllinn er Bens Sprinter árgerð 2015 sem keyptur var af Dagleið ehf og merktur í Þorlákshöfn. Að sögn Bjarna Kr Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra er bíllinn hugsaður bæði sem tækjabíll og til flutnings á mannskap en í honum eru tólf sæti. Verður bíllinn staðsettur á slökkvistöðinni í…Lesa meira