
Frá vinstri: Bergur Breki, Davíð Ernir, Ólafur Ían og Kristinn Benedikt í viðtali á Stöð 2 eSport. Ljósm. fva
FVA tapaði í úrslitum í FRÍS
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Tækniskólinn tryggði sér sigur á Framhaldsskólaleikum Rafíþróttasamtaka Íslands með sigri gegn Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í úrslitaviðureigninni síðastliðinn fimmtudag en keppnin var í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport. Þetta er annað árið í röð sem Framhaldsskólaleikarnir eru haldnir og í bæði skiptin hefur Tækniskólinn tekið bikarinn með sér heim.\r\n\r\nSkólarnir hófu leik í CS:GO og þar var það Tækniskólinn sem hafði betur. Því næst var keppt í FIFA en þar voru það liðsmenn FVA sem báru sigur úr býtum og því var ljóst að úrslitin myndu ráðast í Rocket League. Í Rocket League þurfti að vinna tvo af þremur leikjum til að sigra viðureignina. Tækniskólinn vann fyrsta leikinn en FVA hafði betur í öðrum leiknum og því réðust úrslitin í oddaleik.\r\n\r\nÞað voru að lokum liðsmenn Tækniskólans sem tryggðu sér sigur á Framhaldsskólaleikunum. Liðið vann 3-2 sigur í lokaleiknum þar sem sigurmark Tækniskólans kom þegar aðeins 40 sekúndur voru eftir en FVA lagaði stöðuna þegar 24 sekúndur voru eftir af leiknum. Nær komust þeir ekki þó litlu hefðu munað á síðustu sekúndunni að þeir hefðu jafnað en hittu því miður ekki úr sínu síðasta skoti.\r\n\r\nLiðsmenn FVA í CS:GO voru þeir Eysteinn Agnar Georgsson, Sindri Már Sigurðsson, Ágúst Páll Þorsteinsson, Kristinn Benedikt Gross Hannesson, Adrian Pawelczyk og Bóas Orri Hannibalsson. Í FIFA voru Olaf Zablocki, Róbert Leó Gíslason, Guðmundur Tyrfingsson og Ingi Þór Sigurðsson. Í Rocket League voru þeir Ólafur Ían Brynjarsson, Bergur Breki Stefánsson, Davíð Ernir Jónsson og Gabríel Ómar Hermannsson.",
"innerBlocks": []
}