
H listinn var kynntur til leiks í gær. Ljósm. sá.
H-listinn í sameinuðu sveitarfélagi kynnir framboðslista sinn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fjölmennum fundi í gærkvöldi kynnti H-listinn – listi framfarasinna framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þá verður kosin ný sveitarstjórn í sameiginlegu sveitarfélagi Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar. Bæjar- og sveitarstjóraefni H-listans er Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar. Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, oddviti listans og forseti bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar segist vera full tilhlökkunar fyrir komandi kosningarbaráttu og komandi kjörtímabili. „H-listinn bíður fram öflugan hóp af mjög frambærilegu fólki sem býr yfir metnaði til þess að gera vel fyrir sitt samfélag og vinna áfram að framfaramálum fyrir sameinað sveitarfélag Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar.“\r\n\r\nJakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri og bæjar- og sveitarstjóraefni H-listans: „Ég er fyrst og fremst þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt og er ég fullur tilhlökkunar. Á kjörtímabilinu hefur verið lagður grunnur að framtíðinni í fjölmörgum mikilvægum málum sem mikilvægt er að halda áfram með á sama tíma og við höfum verið að vinna að fjölmörgum umbótamálum. Það eru spennandi tímar framundan, en um leið krefjandi. Ég mun leggja mig allan fram við að rísa undir því trausti sem mér er sýnt,“ segir Jakob Björgvin.\r\n\r\n<em><strong>Framboðslisti H-listans í sameinuðu sveitarfélagi Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar:</strong></em>\r\n\r\nNr. 1. Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, skólameistari.\r\n\r\nNr. 2. Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir, kennari.\r\n\r\nNr. 3. Ragnar Ingi Sigurðsson, íþróttafræðingur og sjálfstætt starfandi.\r\n\r\nNr. 4. Þórhildur Eyþórsdóttir, kennari.\r\n\r\nNr. 5. Halldór Árnason, sjálfstætt starfandi.\r\n\r\nNr. 6. Sæþór Heiðar Þorbergsson, matreiðslumeistari og sjálfstætt starfandi.\r\n\r\nNr. 7. Viktoría Líf Ingibergsdóttir, þjónustufulltrúi og nemi í miðlun og almannatengslum.\r\n\r\nNr. 8. Guðmundur Kolbeinn Björnsson, vélfræðingur og fyrrverandi verktaki.\r\n\r\nNr. 9. Gunnar Ásgeirsson, vélfræðingur.\r\n\r\nNr. 10. Þröstur Ingi Auðunsson, sjómaður, útgerðarmaður og vélfræðingur.\r\n\r\nNr. 11. Anna Margrét Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur.\r\n\r\nNr. 12. Kári Geir Jensson, framkvæmdarstjóri og sjómaður.\r\n\r\nNr. 13. Arnar Geir Diego Ævarsson, meindýraeyðir, verka- og sjúkraflutningarmaður.\r\n\r\nNr. 14. Guðrún Reynisdóttir, bóndi.",
"innerBlocks": []
}