Saxhamar SH kemur að landi. Ljósm. af

Saxhamar og Magnús fiska vel á netaralli

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þrír bátar frá Snæfellsnesi eru í hópi sex báta sem taka þátt í netaralli Hafró þetta árið. Hefur afli verið mjög góður eða allt að 50 tonn eftir daginn. Á meðfylgjandi mynd er Saxhamar SH að koma að landi í Rifi með 50 tonna afla, en Saxhamar hefur fært sínar trossur sunnar með landinu og síðast þegar fréttist landaði báturinn afla sínum í Reykjavík.\r\n\r\nEinnig hefur Magnús SH landað mjög góðum afla og hefur suma dagana tvílandað og aflinn farið vel yfir 50 tonn. Magnús SH sér um netarallið Á Breiðafirði og landar öllum aflanum í Rifi. Þórsnesið SH stundar einnig veiðar frá Reykjanesi og að Þrídröngum. Loks er Friðrik Sigurðsson ÁR á miðunum frá Þrídröngum að Skeiðarárdjúpi, Sigurður Ólafsson SF frá Meðallandsbugt að Hvítingum og Hafborg EA fyrir Norðurlandi.\r\n\r\nNetarallið fer þannið fram að um 45-60 trossur eru lagðar á hverju svæði og er þeim dreift innan svæða á helstu hrygningarslóðir þorsks. Á hverju svæði er helmingur lagður í fyrirfram ákveðna punkta, svokallaðar fastar stöðvar, en hinn helmingurinn er lausar stöðvar sem skipstjórar ákveða hvar skulu lagðar.\r\n\r\nMarkmið verkefnisins er að safna upplýsingum um lengdar- og þyngdasamsetningu, kynþroska og vöxt eftir aldri á helstu hrygningarsvæðum þorsks. Einnig til að meta árlegt magn kynþroska þorsks sem fæst í þorskanet á hrygningarstöðvum og meta breytingar í gengd hrygningarþorsks á mismunandi svæðum.",
  "innerBlocks": []
}
Saxhamar og Magnús fiska vel á netaralli - Skessuhorn