Sexfalt meiri eftirspurn en framboð af greiðslumarki í mjólk

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrsti tilboðsmarkaður ársins með greiðslumark í mjólk var haldinn 1. apríl síðastliðinn. Matvælaráðuneytinu bárust 162 gild tilboð um kaup og voru sölutilboð 19. Boðnir voru 1.309 þúsund lítrar til sölu en óskað eftir að kaupa 7.830 þúsund lítra, en það jafgildir því að eftirspurnin var sexfalt meiri en framboðið. Sérstök úthlutun til nýliða er 5% af sölutilboðum eða 65.481 lítrar, en fjöldi gildra kauptilboða frá nýliðum voru 13. „Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Matvælaráðuneytið mun senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð,“ segir í tilkynningu.",
  "innerBlocks": []
}
Sexfalt meiri eftirspurn en framboð af greiðslumarki í mjólk - Skessuhorn