{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Slökkvilið Borgarbyggðar hefur fest kaup á nýjum bíl í flotann. Bíllinn er Bens Sprinter árgerð 2015 sem keyptur var af Dagleið ehf og merktur í Þorlákshöfn. Að sögn Bjarna Kr Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra er bíllinn hugsaður bæði sem tækjabíll og til flutnings á mannskap en í honum eru tólf sæti. Verður bíllinn staðsettur á slökkvistöðinni í Reykholti. Í bílnum verður m.a. búnaður á rennibrautum til reykköfunar auk klippibúnaðar. Bjarni segir að í bílnum verði hafður til taks fatnaður og búnaður þeirra slökkviliðsmanna sem hafa aðsetur í Reykholti og geti þeir þá eftir atvikum farið beint á vettvang útkalls en búnaður þeirra verður í bílnum og honum ekið af þeim sem býr næst slökkvistöðinni. Slíkt geti sparað tíma þegar mikið liggur við. Kostnaður við bílinn er að sögn Bjarna um tólf milljónir króna.",
"innerBlocks": []
}
Nýr tækja- og mannskapsbíll til slökkviliðsins - Skessuhorn