Olís styrkir Golfklúbbinn Leyni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Golfklúbburinn Leynir á Akranesi og Olís endurnýjuðu nýverið styrktarsamning sín á milli. Samningurinn er til tveggja ára en Olís hefur verið einn af öflugustu bakhjörlum klúbbsins til nokkurra ára. Samningurinn var eitt af síðustu embættisverkum Gunnars Sigurðssonar, svæðisstjóra Olís á Vesturlandi, en hann hefur nú látið af störfum hjá fyrirtækinu. Það var Rakel Óskarsdóttur framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis sem skrifaði undir samninginn. „Stjórn Leynis þakkar Olís fyrir veittan stuðning á liðnum árum og er afar þakklát með framhaldið. Sérstakar þakkir færum við Gunnari Sigurðssyni og hans starfsfólki fyrir mjög gott samstarf á samningstímanum,“ segir í tilkynningu frá klúbbnum.",
  "innerBlocks": []
}
Olís styrkir Golfklúbbinn Leyni - Skessuhorn