Fréttir

true

Heimastjórnarflokkurinn hættir við framboð í Borgarbyggð

Hætt hefur verið við framboð Heimastjórnarflokksins til sveitarstjórnar í Borgarbyggð. Þetta tilkynnir Eiríkur Þór Theodórsson stofnandi flokksins í aðsendri grein hér á vefnum. „Við stofnendur Heimastjórnaflokksins í Borgarbyggð fundum í upphafi ríkan meðbyr og áhuga. En ekki nægjanlegan, þegar á leið, til að halda áfram að þessu sinni og því var einboðið að draga sig…Lesa meira

true

Vel heppnaðir málefnafundir Sjálfstæðismanna

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð hafa staðið fyrir röð opinna málefnafunda víðs vegar um sveitarfélagið síðustu daga. Fyrsti fundurinn fór fram á Hvanneyri 21. mars, í Borgarnesi 24. mars, á Snorrastöðum 28. mars og í Þinghamri Varmalandi 29. mars. „Fundirnir voru mjög vel sóttir og fundarmenn samtals töldu á annað hundrað og ljóst að fólk er…Lesa meira

true

Faraldurinn er nú á hröðu undanhaldi

Covid-19 faraldurinn hér á landi er á hröðu undanhaldi eftir að öllum takmörkunum vegna hans var aflétt 25. febrúar síðastliðinn. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu kemur fram að á þeim tíma hafi verið gert ráð fyrir að víðtækt samfélagslegt ónæmi myndi nást gegn faraldrinum, með allt að 80% hlutfalli bólusettra og/eða smitaðra. Slíkt markmið myndi nást…Lesa meira

true

ÍA vann Völsung í Lengjubikarnum

Á laugardaginn tók ÍA á móti liði Völsungs í riðli 2 í C deild kvenna í Lengjubikarnum og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Leikurinn var jafnframt styrktarleikur fyrir hina 19 ára Þuríði Örnu Óskarsdóttur sem hefur barist við heilaæxli frá tveggja ára aldri. Þeir sem vilja styrkja hana geta lagt inn á reikning meistaraflokks kvenna:…Lesa meira

true

FSu sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna

Í gærkvöldi var haldin Söngkeppni framhaldsskólanna 2022 og fór hún fram í Íþróttahöllinni á Húsavík. Emilía Hugrún Lárusdóttir og skólahljómsveit Fjölbrautaskóla Suðurlands báru sigur úr býtum en flottur flutningur þeirra á lagi Ettu James, I´d Rather Go Blind skilaði þeim sigrinum. Í öðru sæti varð Rakel Björgvinsdóttir úr Menntaskólanum í Tónlist með lagið No Time…Lesa meira

true

Héldu tónleika fyrir börn á flótta frá Úkraínu

Miðvikudaginn 30. mars héldu nemendur og kennarar Tónlistarskóla Snæfellsbæjar, í samstarfi við foreldrafélag skólans, tónleika til styrktar börnum á flótta frá Úkraínu. Tónleikarnir fóru fram í Ólafsvíkurkirkju og heppnuðust vel. Flestir nemendur tónlistarskólans komu fram ásamt kennurum sínum. Mjög vel var mætt á tónleikana og setið í flestum sætum kirkjunnar. Ekki var rukkað sérstaklega inn…Lesa meira

true

Skátar og börn í Úkraínu fá stuðning

Íslenskir skátar ákváðu um helgina að nota styrktarsjóð sinn til að styðja börn og skáta í Úkraínu á þessum erfiðu tímum. Þetta var samþykkt með standandi lófaklappi á Skátaþingi sem haldið er nú um helgina á Bifröst. Harpa Ósk Valgeirsdóttir, sem nú tekur við sem skátahöfðingi af Mörtu Magnúsdóttur, kynnti ákvörðun styrktarsjóðs skáta í framhaldi…Lesa meira

true

Ráðuneytið mun skoða stjórnsýslu vegna skólabyggingar

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var lagt fram bréf innviðaráðuneytisins dagsett 23. mars 2022 þar sem fjallað er um skýrslu KPMG vegna framkvæmdarinnar við endurbætur og stækkun á Grunnskólanum í Borgarnesi. Í bréfinu er tilkynnt að ráðuneytið muni taka til skoðunar hvort stjórnsýsla sveitarfélagsins í tengslum við framkvæmdir við stækkun skólans hafi verið í…Lesa meira

true

Framleiðni hækkar umfram laun

Í nýlegu mánaðaryfirliti Alþýðusambands Íslands var að finna samantekt á nýjum gögnum Hagstofunnar um laun og framleiðni í hagkerfinu. Gögn Hagstofunnar sýna að framleiðni hækkaði umfram laun milli áranna 2020 og 2021. Framleiðni og laun eru skilgreind sem framleiðsla og laun auk launatengdra gjalda á hverja unna vinnustund. Í einkageiranum hér á landi jókst framleiðni…Lesa meira

true

Vilja að bankapeningar fari til uppbyggingar í samgöngukerfinu

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti á fimmtudaginn ályktun þess efnis að gerð verði sú krafa að hluti þeirra fjármuna sem fengust með nýlegri sölu eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf. verði nýttir til uppbyggingar á grunnneti samgöngukerfisins. Í því sambandi er bent á nauðsyn þess að fullfjármagna endurbætur á Skógarstrandarvegi og að ríkið fjárfesti í nýrri og öflugri…Lesa meira