Vegurinn um Skógarströnd. Ljósm. úr safni/ bj.

Vilja að bankapeningar fari til uppbyggingar í samgöngukerfinu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti á fimmtudaginn ályktun þess efnis að gerð verði sú krafa að hluti þeirra fjármuna sem fengust með nýlegri sölu eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf. verði nýttir til uppbyggingar á grunnneti samgöngukerfisins. Í því sambandi er bent á nauðsyn þess að fullfjármagna endurbætur á Skógarstrandarvegi og að ríkið fjárfesti í nýrri og öflugri Breiðafjarðarferju sem uppfylli allar nútíma öryggiskröfur.\r\n\r\n„Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar vill benda á að með sölu 22,5% af hlutafé ríkisins í Íslandsbanka hf., en söluandvirðið nam 52,65 milljörðum króna, gefst aukið svigrúm til fjárfestingar í innviðum samfélagsins í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs þar sem lögð er áhersla á að nýta það fjármagn sem fæst með sölunni til uppbyggingu innviða.“\r\n\r\nÞá er bent á það í ályktun bæjarstjórnar að mikilvægt sé að byggja upp þá samgönguinnviði í grunnneti samgöngukerfisins sem eru í óboðlegu ástandi í dag, líkt og Snæfellsnesvegur nr. 54 um Skógarströnd og Breiðafjarðarferjan Baldur eru. „Sé það markmiðið að söluandvirðið verði nýtt til samfélagslega arðbærra fjárfestinga þá er ljóst að þeir grunninnviðir sem eru í óboðlegu ástandi, á alla mælikvarða, eigi að vera í forgangi hvað varðar ráðstöfun fjármuna. Minnir bæjarstjórn á að umræddar fjárfestingar eru forgangsmál samkvæmt samgönguáætlun Vesturlands sem samþykkt hefur verið af sveitarfélögum á Vesturlandi. Þá var í nýafstöðnum kosningum um sameiningu Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar, sem var samþykkt af íbúum beggja sveitarfélaga, umrædd innviðauppbygging meðal þeirra áhersluatriða sem lágu til grundvallar þeirri sameiningu og forgangsröðun ríkisstjórnar ætti jafnframt að taka mið af þeim.“",
  "innerBlocks": []
}
Vilja að bankapeningar fari til uppbyggingar í samgöngukerfinu - Skessuhorn