Grunnskólinn í Borgarnesi. Ljósm. mm.

Ráðuneytið mun skoða stjórnsýslu vegna skólabyggingar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var lagt fram bréf innviðaráðuneytisins dagsett 23. mars 2022 þar sem fjallað er um skýrslu KPMG vegna framkvæmdarinnar við endurbætur og stækkun á Grunnskólanum í Borgarnesi. Í bréfinu er tilkynnt að ráðuneytið muni taka til skoðunar hvort stjórnsýsla sveitarfélagsins í tengslum við framkvæmdir við stækkun skólans hafi verið í samræmi við formreglur fjármálakafla sveitarstjórnarlaga. Kannað verður hvort téðar ákvarðanir sveitarfélagsins hafi verið í samræmi við reglur um bindandi áhrif fjárhagsáætlana og hvort farið hafi verið að reglum um forsvaranlega meðferð fjármuna.\r\n\r\nÁður hefur komið fram í fréttum um málið að fyrir liggur að annmarkar voru á vinnulagi og eftirliti stjórnsýslunnar allt frá upphafi framkvæmda við grunnskólann 2014. Ekki lá fyrir í upphafi með ítarlegum hætti hlutverk og ábyrgð byggingarnefndar, stjórnenda og eftirlits, ekki var farið eftir þágildandi innkaupareglum og einstaka þættir ekki unnir með fullnægjandi hætti. Verkið í heild fór því fram úr áætlunum um kostnað. Í skýrslu sem KPMG vann um málið kom m.a. fram hvaða atriði það hafi verið sem fóru úrskeiðis við framkvæmdina og ákvað sveitarstjórn að gera úrbætur á því ferli sem hefur verið við stærri framkvæmdir á vegum þess.\r\n\r\nÁ fundi byggðarráðs síðastliðinn fimmtudag voru einnig lögð fram drög að fyrstu útgáfu gæðahandbókar Borgarbyggðar og hefur byggðarráð samþykkt nýjar verklagsreglur um viðauka við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins sem eiga að koma í veg fyrir að farið sé með fjármuni sveitarfélagsins í samræmi við formreglur fjármálakafla sveitarstjórnarlaga og í samræmi við bindandi áhrif fjárhagsáætlana.\r\n\r\nEftir sem áður hefur innviðaráðuneytið ákveðið að gerð verði skoðun á málinu. Í tilkynningu þess segir m.a: „Þau atriði sem ráðuneytið mun meðal annars fjalla um eru hvort stjórnsýsla sveitarfélagsins í tengslum við framkvæmdir sveitarfélagsins sem fjallað er um í skýrslu KPMG og í ábendingu málshefjanda [Guðveig Eyglóardóttir oddviti Framsóknarflokks, innsk blm.] hafi verið í samræmi við formreglur fjármálakafla sveitarstjórnarlaga, hvort stjórnsýsla sveitarfélagsins í tengslum við framkvæmdirnar hafi verið í samræmi við regluna um bindandi áhrif fjárhagsáætlunar og hvort umræddar framkvæmdir hafi verið í samræmi við þær kröfur sem reglan um forsvaranlega meðferð fjármuna gerir til framkvæmda á vegum sveitarfélags að öðru leyti. Þá mun ráðuneytið einnig fjalla um hvort innkaup sveitarfélagsins vegna framkvæmdanna hafi verið í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar, m.a. jafnræðisregluna og réttmætisregluna.“\r\n\r\n<em>Sjá bréf ráðuneytisins:</em>\r\n\r\n<a class=\"link-to-pdf\" title=\"Borgarbyggð - IRN22010482\" href=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/04/Borgarbyggd-IRN22010482.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"attachment noopener wp-att-52393\"><img class=\"alignnone size-medium wp-image-52394\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/04/Borgarbyggd-IRN22010482-pdf-600x849.jpg\" alt=\"thumbnail of Borgarbyggð – IRN22010482\" width=\"212\" height=\"300\" /></a>",
  "innerBlocks": []
}
Ráðuneytið mun skoða stjórnsýslu vegna skólabyggingar - Skessuhorn