{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í nýlegu mánaðaryfirliti Alþýðusambands Íslands var að finna samantekt á nýjum gögnum Hagstofunnar um laun og framleiðni í hagkerfinu. Gögn Hagstofunnar sýna að framleiðni hækkaði umfram laun milli áranna 2020 og 2021. Framleiðni og laun eru skilgreind sem framleiðsla og laun auk launatengdra gjalda á hverja unna vinnustund.\r\n\r\nÍ einkageiranum hér á landi jókst framleiðni um 4,1% á meðan laun hækkuðu um 2,6%. „Þetta gerir að verkum að launahlutfall lækkaði milli ára. Launahlutfall er hefðbundinn mælikvarði á skiptingu verðmætasköpunar milli launafólks og fjármagnseigenda. Það mælir hversu hátt hlutfall verðmætasköpunar fer til launafólks. Í fyrra var launahlutfallið rétt yfir langtímameðaltali. Síðan 2017 hefur launahlutfall hér á landi haldist nokkuð stöðugt. Þessar nýju tölur sýna því að laun hafi þróast í takt við framleiðni á síðustu árum,“ segir í tilkynningu frá ASÍ.\r\n\r\nÞá segir í hugleiðingum hagfræðings ASÍ að nokkuð hafi borið á umræðu um að laun á Íslandi séu þau hæstu sem þekkist og að laun hafi kerfisbundið hækkað umfram framleiðnivöxt. „Hvorugt er rétt. Frá aldamótum hafa laun og framleiðni í einkageiranum haldist í hendur. Frá 2000 til 2021 tvöfaldaðist framleiðni á sama tíma og laun hækkuðu um 88%. Í nýlegri greinargerð ASÍ sem lögð var fram á fundi Þjóðhagsráðs má lesa nánar um gögnin.“",
"innerBlocks": []
}