
Frá einum fundinum. Bjarni Benedikt Gunnarsson með orðið. Ljósm. aðsend.
Vel heppnaðir málefnafundir Sjálfstæðismanna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð hafa staðið fyrir röð opinna málefnafunda víðs vegar um sveitarfélagið síðustu daga. Fyrsti fundurinn fór fram á Hvanneyri 21. mars, í Borgarnesi 24. mars, á Snorrastöðum 28. mars og í Þinghamri Varmalandi 29. mars.\r\n\r\n„Fundirnir voru mjög vel sóttir og fundarmenn samtals töldu á annað hundrað og ljóst að fólk er nokkuð fundaþyrst eftir samkomutakmarkanir síðustu ára og tilbúið til að ræða málefni sveitarfélagsins. Það sem brennur á íbúum sveitarfélagsins fyrir kosningarnar 14. maí n.k. eru m.a. skipan skólamála, skipulagsmál, vindorkunýting, dreifing byggðar, viðhald fasteigna og gatna og margt fleira. Umræður voru málefnalegar og mjög gagnlegar fyrir frambjóðendur inn í komandi stefnumótunarvinnu framboðsins og dýrmætt að íbúar hafi gefið sér tíma til að hitta frambjóðendur,“ segir í fréttatilkynningu frá framboðinu.\r\n\r\n„Næst á dagskrá er að klára stefnuskrá framboðsins og kynna í kjölfarið bæði okkur frambjóðendur og stefnumálin betur fyrir íbúum Brgarbyggðar. Það er stutt í kosningar og mikilvægt að íbúar láti sér málefnin varða þannig að saman getum við eflt enn frekar okkar góða samfélag í sátt, samstarfi og samlyndi til framtíðar litið,“ segir Lilja Björg Ágústsdóttir oddviti framboðs Sjálfstæðismanna í fréttatilkynningu.",
"innerBlocks": []
}